Jón Arnór ekki með gegn Lúxemborg

Jón Arnór Stefánsson verður ekki með í landsleikjunum gegn Lúxemborg.
Jón Arnór Stefánsson verður ekki með í landsleikjunum gegn Lúxemborg. mbl.is/Kristinn

Jón Arnór Stefánsson mun ekki spila með íslenska landsliðinu í körfubolta í tveimur vináttulandsleikjum gegn Lúxemborg ytra á fimmtudag og föstudag. Jón Arnór fær frí af persónulegum ástæðum.

Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag, en íslenska karlalandsliðið undirbýr sig nú fyrir leiki gegn Bretlandi og Bosníu í undankeppni Evrópumótsins 2015 í körfubolta.

30 manna leikmannahópur hefur verið við æfingar í sumar, en tilkynnt verður í dag hverjir fara til Lúxemborgar í æfingaleikina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert