Elvar Már og Ólafur hvíla gegn Bretum

Elvar Már Friðriksson hvílir gegn Bretum á morgun líkt og …
Elvar Már Friðriksson hvílir gegn Bretum á morgun líkt og Ólafur Ólafsson. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Íslenska landsliðið í körfuknattleik var rétt í þessu að ljúka æfingu í Kopperbox-höllinni hér í Lundúnum, þar sem leikurinn mikilvægi gegn Bretum fer fram annað kvöld.

Eins og komið hefur fram komu þeir Jón Arnór Stefánsson og Helgi Már Magnússon til móts við hópinn í dag og nú er ljóst að þeir verða báðir í leikmannahópnum á morgun, en Craig Pedersen landsliðsþjálfari var að tilkynna hópinn nú eftir æfinguna.

Þeir koma inn fyrir þá Elvar Má Friðriksson og Ólaf Ólafsson sem detta úr hópnum frá tapinu gegn Bosníu á sunnudag. Hópurinn er eftirfarandi:

Axel Kárason
Haukur Helgi Pálsson
Sigurður Þorsteinsson
Hlynur Bæringsson
Martin Hermannsson
Helgi Már Magnússon
Sigurður Þorvaldsson
Ragnar Nathanaelsson
Hörður Axel Vilhjálmsson
Logi Gunnarsson
Jón Arnór Stefánsson
Pavel Ermolinskij

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert