Skorar á menn að mæta á landsleikinn

Friðrik Ingi Rúnarsson skorar á menn að mæta í Laugardalshöll …
Friðrik Ingi Rúnarsson skorar á menn að mæta í Laugardalshöll og styðja íslenska karlalandsliðið í körfubolta gegn Bosníu í næstu viku. mbl.is/Eva Björk

Friðrik Ingi Rúnarsson þjálfari Njarðvíkur í körfubolta og fyrrverandi landsliðsþjálfari karlalandsliðs Íslands og framkvæmdastjóri KKÍ hefur sent frá sér myndband þar sem hann skorar á Örvar Þór Kristjánsson körfuboltaþjálfara, útvarpsmanninn Þórð Helga Þórðarson (betur þekktur sem Doddi litli) og söngvarann Sverri Bergmann til að mæta í Laugardalshöll á landsleik Íslands og Bosníu í undankeppni EM 2015 á miðvikudag.

Friðrik skorar jafnframt í myndbandinu á þessa þrjá að þekkjast boðið og skora á þrjá aðra til að mæta á leikinn til að fylla Höllina í leiknum.

Ísland er nánast komið inn í lokakeppni EM í körfubolta í fyrsta sinn, en sigur á Bosníu gulltryggir EM sætið og gæti jafnvel orðið til þess að Ísland vinni riðilinn sinn í undankeppninni.

Áskorun Friðriks Inga má sjá hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert