Helena Sverrisdóttir, landsliðskona í körfuknattleik, hefur samið við pólska félagið CCC Polkowice um að leika með liðinu á komandi tímabili.
Helena spilaði á síðasta tímabili með Miskolc í Ungverjalandi en var þar áður í Slóvakíu. Hún hefur verið samningslaus síðan hún yfirgaf Miskolc.
Pólska félagið spilaði í fyrsta sinn í Evrópudeildinni fyrir tveimur árum eftir að hafa endað í öðru sæti í deildinni heima fyrir árið áður.
Excited! 📝🏀😊 pic.twitter.com/QNJ3xeR4yS
— Helena Sverrisdottir (@HelenaSverris) August 27, 2014