Á sakaskrá og kemur ekki til Keflavíkur

Titus Rubles kemur ekki til Keflavíkur.
Titus Rubles kemur ekki til Keflavíkur. AFP

Bandaríski miðherjinn Titus Rubles sem Keflvíkingar hugðust tefla fram í Dominos-deild karla í körfuknattleik í vetur mun ekki ganga í raðir félagsins.

Samkvæmt frétt á vefmiðlinum karfan.is gekk hægt að fá pappíra leikmannsins til landsins og þegar þeir loks bárust varð ljóst að Rubles kæmi ekki til landsins þar sem hann væri á sakaskrá ytra.

Sævar Sævarsson varaformaður körfuknattleiksdeildar Keflavíkur staðfesti þetta við körfuna.is og eru Keflvíkingar nú í leit að nýjum manni í stað Rubles.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert