Hérna gætu hæglega fleiri Íslendingar spilað

Sigurður Gunnar Þorsteinsson.
Sigurður Gunnar Þorsteinsson. mbl.is/Ómar

„Það er ekki búist við neinu af þessu liði, enda er það ungt, en ég held að við náum ofar en margir búast við. Við erum enn að mótast,“ sagði Sigurður G. Þorsteinsson, Ísafjarðartröllið, sem fetar nú sín fyrstu skref í atvinnumennsku með liði Solna Vikings í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik.

Sigurður kom til liðsins rétt áður en leiktíðin hófst og tók strax við stóru hlutverki. Í fyrstu fimm umferðunum hefur hann spilað næstmest allra leikmanna liðsins og að meðaltali skorað 9 stig og tekið 6 fráköst í leik.

„Þeir höfðu áhuga á mér í sumar en ég fékk svo að heyra það í júlí að þeir hefðu ekki átt pening fyrir mér. Það urðu svo einhverjar breytingar á hópnum skömmu fyrir mót og þá áttu þeir nægan pening og höfðu samband. Það var hringt í mig á þriðjudegi og ég farinn út á föstudegi. Þetta er eitthvað sem mig hefur alltaf langað til að gera og þá stekkur maður til þegar tækifærið gefst,“ sagði Sigurður. Hann segir viðbrigðin frá því að spila með Grindavík í Dominos-deildinni, og að spila nú í Svíþjóð, vitaskuld nokkur.

„Það eru fleiri æfingar með liðinu, þetta er nánast það eina sem maður gerir yfir daginn. Viðbrigðin í deildinni felast í því að það eru fleiri góðir leikmenn í hverju liði, varamannabekkirnir „dýpri“ og þvíumlíkt, og menn almennt stærri og sterkari. Það er ekkert himinn og haf á milli deildarinnar hér og heima, en þetta eru viðbrigði. Hérna gætu hæglega fleiri leikmenn úr deildinni heima spilað, en ekki margir úr hverju liði,“ sagði Sigurður, sem virðist ætla að pluma sig vel hjá Víkingunum.

Sjá allt viðtalið við Sigurð Gunnar í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert