KR-ingar efstir eftir framlengingu

Darrel Lewis úr Tindastóli og Michael Craion úr KR í …
Darrel Lewis úr Tindastóli og Michael Craion úr KR í leiknum í kvöld. mbl.is/Kristinn

Íslandsmeistarar KR eru einir á toppi Dominos-deildar karla í körfuknattleik eftir sigur á Tindastóli í framlengdum leik í DHL-höllinni, 95:89, en staðan var 78:78 eftir venjulegan leiktíma.

KR er þá með 6 stig eftir þrjá leiki en nýliðar Tindastóls töpuðu sínum fyrstu stigum í kvöld og eru með 4 stig eftir þrjá leiki.

KR tók á móti taplausum Stólum í kvöld. Eftir frábæra byrjun héldu menn að KR ætluðu sér að valta yfir nýliðina en eftir að hafa jafnað sig tiltölulega fljótt þá náðu Stólarnir að koma sér aftur inní leikinn og ná 10 stiga forskoti.

Þessum góða kafla náðu þeir hinsvegar ekki að fylgja nægilega vel eftir, sem kostaði að KR komst ekki bara aftur inní leikinn heldur tóku þeir völdin á vellinum og náðu sjálfir 9 stiga forystu, sem þeir héldu lengi vel í seinni hálfleik.

Stólarnir komu síðan sterkir inní fjórða hluta og áttu með ágætri spilamennsku á lokamínútum venjulegs leiktíma að klára KR, sem voru illa upplagðir þegar lítið lifði leik. Þetta klikkaði hinsvegar sögulega illa hjá gestunum og KR þakkaði fyrir sig og tók öll völd í leiknum, jafnaði og var nærri búið að vinna leikinn á lokasekúndum hans.

Bæði lið fengu tækifærin til að klára leikinn en hvorugt gat og því þurfti að framlengja. Í framlengingunni þá var aldrei spurning hvort liðið myndi sigra, Dempsey var farinn af velli og Stólar í sóknarvandræðum. KR gerði mjög vel og hélt pressunni á Stólunum þegar leikmenn þess voru orðnir áberandi þreyttir.

Hjá KR var Brynjar bestur en fast á hæla hans kom Helgi Magg, sem settir gríðarlega stórar körfur í leiknum. Craion var sterkur sem fyrr en ekki eins áberandi og oft áður.    
Helgi Freyr var frábær á kafla fyrir Stólanna en þurfti að fylgja því betur eftir í seinni hálfleik. Lewis var þeirra besti maður en Ingvi Ingvason var einnig alveg frábær. Stólarnir klúðruðu þessum leik mun meira en að KR hafi unnið hann því tækifærið var slíkt að ei verður hjá því horft.

Meira um leikinn í Morgunblaðinu í fyrramálið.

Til að sjá allt sem gerðist í leikjum kvöldsins, smellið á KÖRFUBOLTINN Í BEINNI.

Gangur leiksins:: 3:0, 12:2, 13:10, 15:14, 20:21, 24:31, 31:34, 42:36, 49:40, 55:47, 60:53, 63:62, 63:66, 68:72, 68:75, 78:78, 83:89, 95:.

KR: Brynjar Þór Björnsson 28/8 fráköst, Helgi Már Magnússon 22/9 fráköst, Michael Craion 21/8 fráköst, Darri Hilmarsson 10/9 fráköst, Högni Fjalarsson 6, Finnur Atli Magnússon 4/5 fráköst, Hörður Helgi Hreiðarsson 2/6 fráköst, Björn Kristjánsson 2.

Fráköst: 35 í vörn, 11 í sókn.

Tindastóll: Darrel Keith Lewis 24/11 fráköst, Ingvi Rafn Ingvarsson 20/4 fráköst, Helgi Freyr Margeirsson 18, Myron Dempsey 12/8 fráköst, Pétur Rúnar Birgisson 6/4 fráköst/7 stoðsendingar, Darrell Flake 5, Helgi Rafn Viggósson 3/4 fráköst, Svavar Atli Birgisson 1.

Fráköst: 26 í vörn, 11 í sókn.

Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson, Björgvin Rúnarsson, Halldor Geir Jensson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert