Íslendingaliðin Sundsvall og Solna voru bæði á ferðinni í sænska körfuboltanum í kvöld. Stórleikur Hlyns Bæringssonar dugði Sundsvall ekki til sigurs á heimavelli gegn Norrköping sem sigraði 89:79.
Hlynur skoraði 24 stig og tók auk þess 14 fráköst. Jakob Örn Sigurðarson skoraði 14 stig og Ægir Þór Steinarsson 7 en hann gaf flestar stoðsendingar hjá Sundsvall eða 4. Ragnar Nathanaelsson náði ekki að skora en hann lenti strax í villuvandræðum og kom lítið við sögu.
Sigurður Þorsteinsson skoraði 11 stig og tók 5 fráköst fyrir Solna sem vann stóran útisigur á Örebro, 88:68.