Sigurður og félagar skoruðu 39 stig

Sigurður Gunnar Þorsteinsson spilar í Svíþjóð í vetur.
Sigurður Gunnar Þorsteinsson spilar í Svíþjóð í vetur. mbl.is/Ómar

Sigurður G. Þorsteinsson og samherjar hans í Solna skoruðu aðeins 39 stig þegar þeir töpuðu á heimavelli fyrir Norrköping, með 20 stiga mun, 39:59, í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í kvöld. 

Sigurður skoraði aðeins tvö stig, tók 2 fráköst og átti eina stoðsendingu er tölfræðin er rétt úr þessum mikla varnarleik. Solna er í 7. sæti af 11 liðum deildarinnar með tvo sigurleiki eftir sjö viðureignir.

Haukur Helgi Pálsson skoraði tvö stig, tók sjö fráköst og átti tvær stoðsendingar þegar lið hans LF Basket tapaði á útivelli fyrir Borås, 92:70. LF Basket er í 5. sæti með fjóra sigurleiki eftir sjö viðureignir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert