Þriðji sigur Jóns Arnórs og félaga

Jón Arnór Stefánsson, t.v.
Jón Arnór Stefánsson, t.v. Árni Sæberg

Jón Arnór Stefánsson og samherjar hans í spænska liðinu Unicaja Málaga halda sigurgöngu sinni áfram í Meistaradeildinni í körfuknattleik. Í kvöld unnu þeir franska liðið Limoges, 75:69, á heimavelli. Þetta var þriðji sigur Unicaja Málaga í keppninni í vetur.

Jón Arnór hefur glímt við meiðsli á vinstri fæti síðustu daga samkvæmt heimasíðu Unigaja. Hann lék af þeim sökum aðeins með í hálfa sjöttu mínútu í leiknum í kvöld. Jón Arnór skoraði á þeim tíma fjögur stig, átti eina stoðsendingu og krækti í eina villu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert