Ingi: Leikplanið út um gluggann

Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, var að vonum brúnaþungur eftir tapið gegn Njarðvík þegar mbl.is náði tali af honum í kvöld. Tap gegn sterku liði Njarðvíkinga var ekki eitthvað sem hann hafði ætlað sér en hann kvað sína menn einfaldlega ekki hafa verið nægilega grimma.

Ingi sagði sína lykilmenn alla þurfa að skila sínu besta þar sem hópur hans væri þá þegar þunnur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert