Helena Sverrisdóttir, landsliðskona í körfuknattleik, var næststigahæst í liði Polkowice sem vann 17 stiga sigur á Siedlce, 79:62, í pólsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í kvöld.
Helena skoraði 17 stig í leiknum og átti auk þess 3 stoðsendingar og tók 2 fráköst.
Staðan var 62:60 Polkowice í vil þegar rúmar sjö mínútur voru til leiksloka en þá skoraði liðið 15 stig í röð og gerði út um leikinn.
Polkowice er með 13 stig eftir 7 leiki, en gefið er 1 stig fyrir tap og 2 fyrir sigur. Liðið er þremur stigum frá toppnum. Siedlce er í 8. sæti með 10 stig.