Lítið gengur hjá Cleveland

LeBron James
LeBron James AFP

Cleveland tapaði enn einum leiknum, þeim fjórða í röð, í nótt þegar liðið tók á móti Toronto. Lokatölur urðu 93:110.

„Við erum með mjög brothætt lið og það hefur gengið illa hjá okkur að undanförnu. En ég er bjartsýnn á að þetta sé að koma hjá okkur,“ sagði LeBron James, leikmaður Clevland, eftir tapið, en heimamenn náðu 18 stiga forystu í fyrri hálfleik sem þeim tókst ekki að halda.

Louis Williams kom sterkur inn af bekknum hjá Toronto og gerði 36 stig.

Átta aðrir leikir voru í NBA-deildinni í nótt og urðu úrslit þessi:

Indiana - Phoenix 83:106
Orlando - Miami 92:99
Knicks - 76ers 91:83
Houston - Dallas 95:92
Minnesota - Sacramento 101:113
Milwaukee - Washington 100:111
San Antonio - Nets 99:87
Utah - New Orleans 94:106

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert