40 stig hjá Stephen Curry gegn Miami

Shabazz Napier hjá Miami Heat og Stephen Curry hjá Golden …
Shabazz Napier hjá Miami Heat og Stephen Curry hjá Golden State Warriors berjast um boltann í leiknum í nótt. AFP

Stephen Curry skoraði 40 stig þegar Golden State Warriors vann sinn sjötta leik í röð í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Golden State heimsótti Miami Heat og urðu lokatölurnar 114:97.

Curry hafði verið gagnrýndur fyrir slaka hittni í síðustu tveimur leikjum liðsins en hitti úr ellefu af átján skotum sínum í nótt, þar af átta af ellefu utan þriggja stiga línunnar.

Klay Thompson bætti við 24 stigum fyrir Kaliforníuliðið en Chris Bosh var stigahæstur hjá Miami með 26 stig.

Úrslit næturinnar:

Washington - Atlanta 102:106
Miami - Golden State 97:114
Milwaukee - Detroit 98:86
New Orleans - Sacramento 89:99
Denver - Chicago 114:109

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert