Elvar og Martin leika í Madison Square Garden

Martin Hermannsson í leik með KR
Martin Hermannsson í leik með KR mbl.is/Ómar Óskarsson

Elvar Már Friðriksson og Martin Hermannsson, landsliðsmenn í körfuknattleik, munu í kvöld leika í hinni vígfrægu íþróttahöll Madison Square Garden í New York.

Elvar og Martin leika sem kunnugt er með LIU liði Brooklyn-háskólans í efstu deild NCAA háskólakörfuboltans. Í kvöld mæta þeir liði Stony Brook og takast þar á tveir skólar frá New York. Af þeim sökum má gera ráð fyrir miklum fjölda áhorfenda á leiknum eins og alla jafna í efstu deild NCAA körfuboltans.

Elvar og Martin bíða báðir eftir fyrsta sigri sínum í háskólaboltanum en LIU hefur tapað fyrstu tveimur leikjum tímabilsins.

NBA-liðið New York Knicks og NHL-liðið New York Rangers leika heimaleiki sína í Madison Square Garden sem staðsett er á Manhattan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert