LeBron James fór fram úr Barkley

LeBron James í baráttu við Joe Johnson í leiknum í …
LeBron James í baráttu við Joe Johnson í leiknum í nótt. AFP

LeBron James fór í nótt fram úr Charles Barkley í listanum yfir stigahæstu leikmenn í sögu NBA-deildarinnar og er nú númer 23 á listanum. Cleveland sigraði þá Brooklyn 95:91 á heimavelli. 

Meistararnir í San Antonio Spurs töpuðu fyrir Portland Trail Blazers á heimavelli 119:129 en Pétur Guðmundsson lék með báðum þessum liðum á sínum tíma. Þurfti þrjár framlengingar til að knýja fram úrslit. Var þetta annar leikurinn í röð þar sem San Antonio lenti í þremur framlengingum en slíkt hafði ekki gerst í deildinni síðan 1951. Búast má við því að meistararnir verði þreyttir í kvöld þegar liðið þarf að spila við Dallas en nokkrir leikmenn eru á sjúkralistanum hjá San Antonio. 

Úrslit:

Orlando - Utah 94:101
Philadelphia - Charlotte 91:109
Boston - Minnesota 114:98
Cleveland - Brooklyn 95:91
Detroit - Toronto 100:110
Miami - Washington 103:105
Memphis - Chicago 97:103
San Antonio - Portland 119:129
Denver - LA Clippers 109:106
LA Lakers - Oklahoma 103:104

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert