Bryndís með Keflavík á ný

Bryndís Guðmundsdóttir,
Bryndís Guðmundsdóttir, mbl.is/Ómar Óskarsson

Bryndís Guðmundsdóttir mun mæta til leiks eftir áramót og spila með liði Keflavíkur en þetta staðfesti hún í samtali við karfan.is.

Bryndís spilaði með Keflavík á síðasta tímabili og skoraði þá um 17 stig og tók tæp 10 fráköst á leik og því gríðarlegur liðsstyrkur fyrir Keflavík sem situr nú í öðru sæti Dominos-deildarinnar.  

Bryndís ákvað nú í sumar að láta langþráðan draum rætast og fara í heimsreisu. Henni líkur á morgun þegar Bryndís lendir hér heima og mun hún sem fyrr segir mæta til leiks með Keflavík á nýju ári. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert