Óvænt tap hjá Herði og félögum

Hörður Axel Vilhjálmsson og félagar töpuðu óvænt á heimavelli í …
Hörður Axel Vilhjálmsson og félagar töpuðu óvænt á heimavelli í dag. mbl.is/Árni Sæberg

Hörður Axel Vilhjálmsson og félagar hans í Mitteldeutscher töpuðu óvænt á heimavelli fyrir þriðja neðsta liði deildarinnar, Ludwigsburg, í þýsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í dag, 78:66.

Hörður Axel skoraði fimm stig, tók eitt frákast og gaf tvær stoðsendingar fyrir Mitteldeutscher sem er í áttunda sæti deildarinnar með fjórtán stig, en Ludwigsburg vann þarna sinn fjórða leik í vetur og skaust upp í fimmtánda sæti deildarinnar.

Næsti leikur hjá Herði og félögum er á gamlársdag gegn Alba Berlin, sem er á toppi deildarinnar og einungis tapað einum leik í vetur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert