Axel Kárason, landsliðsmaður í körfuknattleik, fór á kostum þegar lið hans Værlöse vann Randers á útivelli 91:76 í dönsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í kvöld.
Axel skoraði 30 stig og tók auk þess 13 fráköst. Var hann stigahæstur á vellinum.
Værlöse er í 8. sæti deildarinnar en Randers er í sætinu fyrir ofan.