Jakob með 19 stig í sigri Sundsvall

Jakob Örn Sigurðarson
Jakob Örn Sigurðarson mbl.is/Ómar

Jakob Örn Sigurðarson skoraði 19 stig þegar Sundsvall sigraði Solna 86:76 í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í kvöld. Fimm Íslendingar komu við sögu í leiknum.

Jakob hitti úr þremur af sex þriggja stiga skotum sínum og hitti úr öllum átta vítaskotum sínum. Landsliðsfyrirliðinn Hlynur Bæringsson var með 8 stig og 6 fráköst. Ægir Þór Steinarsson 4 stig og gaf 2 stoðsendingar. Ragnar Nathanaelsson lék aðeins í rúmar 2 mínútur en tók á þeim tíma 2 fráköst og gaf stoðsendingu. Fyrir Solna skoraði Sigurður Þorsteinsson 7 stig og tók 9 fráköst.

Haukur Helgi Pálsson skoraði 11 stig fyrir LF Basket sem tapaði fyrir Norrköping á útivelli 101:85. Hann átti auk þess 3 stoðsendingar og stal boltanum tvívegis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert