Öðru sinni í vikunni mættust topplið kvenna körfuboltans, Keflavík og Snæfell og í þetta skiptið undanúrslit fyrir sjálfan Powerade bikarinn. Allt undir og búist við blóð, svita og tár frá leikmönnum. Keflavík sigraði í leiknum á miðvikudaginn var og því Snæfell áttu harma að hefna. Svo fór að Keflavík hafði að þessu sinni stór sigur, 81:64 eftir að aðeins fjögur stig skildu liðin í hálfleik.
Þó svo að sömu leikmenn hafi mætt fyrir Snæfell að þessu sinni var þetta allt annað lið framan af leik. Andleysið sem einkenndi liðið fyrr í vikunni hafði verið barið úr þeim líkast til af Inga Þór miðað við hans orð eftir leikinn á miðvikudag. Mikil stöðubarátta einkenndi fyrri hluta leiksins en þegar á leið fóru Keflavíkurstúlkur að herða á sínum varnarleik enn meira og í sókninni fóru þær gersamlega hamförum.
Við þetta þá brotnaði öll þau trú á verkefninu sem þær Snæfellsstúlkur höfðu fyrri hluta leiksins. Það virtist litlu skipta máli hvað Snæfellstúlkur reyndu í varnarleik sínum, orrahríð Keflavíkurstúlkna hitti nánast allt í mark og þegar yfir lauk var munurinn mestur komin í 22 stig þegar um fjórar mínútur voru til loka leiks. Þar með má segja að Ingi Þór hafi kastað inn hvíta handklæðinu.
Líkamstjáningar hans á hliðarlínunni voru þannig að hann átti fá svör við þessum stórleik hjá Keflavík. Vendipunktur leiksins sem fyrr, Carmen Tyson Thomas. Þegar stúlkan fer í gang þá er hún ill viðráðanleg fyrir alla sína andstæðinga. Hún fórnar líkama og limum fyrir liðið og þennan daginn ofaní allt þá var hún sjóðandi heit í skotum sínum.
Svo heit að Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri Reykjavíkur var mættur í stúkuna. Hvort um útkall hafi verið að ræða vegna Tyson Thomas vitum við ekki. Carman daðraði við þrennuna í þessum leik en hún skoraði 32 stig tók 18 fráköst og stal 8 boltum. Munurinn að þessu sinni var einfaldlega að Keflavík spilaði leikinn miklu betur en Snæfell og töluvert vantaði uppá framlag frá fleiri leikmönnum í liði gestanna. Það verða því Keflavík sem halda í úrslitaleikinn um bikarinn í ár og munu mæta þar annað hvort Njarðvík eða Grindavík sem koma til með að spila á mánudag.
Gangur leiksins:: 4:8, 10:10, 12:13, 16:15, 22:21, 23:25, 25:29, 33:29, 41:34, 46:41, 49:41, 54:44, 64:48, 69:52, 76:57, 81:64.
Keflavík: Carmen Tyson-Thomas 32/18 fráköst/5 stoðsendingar/8 stolnir/3 varin skot, Ingunn Embla Kristínardóttir 14/4 fráköst, Sara Rún Hinriksdóttir 11/6 fráköst, Sandra Lind Þrastardóttir 6, Hallveig Jónsdóttir 5, Marín Laufey Davíðsdóttir 4/4 fráköst, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 4/5 fráköst, Lovísa Falsdóttir 3, Bryndís Guðmundsdóttir 2/5 fráköst.
Fráköst: 29 í vörn, 17 í sókn.
Snæfell: Kristen Denise McCarthy 22/12 fráköst/5 stolnir, Hildur Sigurðardóttir 15/11 fráköst/5 stoðsendingar, Berglind Gunnarsdóttir 5, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 5/4 fráköst, Gunnhildur Gunnarsdóttir 4/4 fráköst/3 varin skot, Hugrún Eva Valdimarsdóttir 4, Silja Katrín Davíðsdóttir 3, María Björnsdóttir 2, Rebekka Rán Karlsdóttir 2, Alda Leif Jónsdóttir 2/5 fráköst.
Fráköst: 26 í vörn, 16 í sókn.
Dómarar: Leifur S. Gardarsson, Davíð Kristján Hreiðarsson.