Jón Arnór áfram á toppnum

Jón Arnór Stefánsson reynir skot í leik með Unicaja.
Jón Arnór Stefánsson reynir skot í leik með Unicaja. EPA

Jón Arnór Stefánsson og félagar í Unicaja Málaga unnu nauman sigur á Laboral Kutxa í spænsku 1. deildinni í körfuknattleik í kvöld, 76:74.

Jón lék 15 og hálfa mínútu í leiknum, þar á meðal lokamínúturnar og hann kom Unicaja í 71:64 þegar ein og hálf mínúta var til leiksloka. Laboral Kutxa minnkaði muninn í tvö stig með þriggja stiga körfu í lokin en komst ekki nær.

Jón skoraði alls fjögur stig í leiknum úr þremur tveggja stiga skotum, og tók tvö fráköst.

Unicaja hefur nú unnið 16 af 19 leikjum sínum og er einum sigri fyrir ofan Real Madrid sem vann Gipuzkoa, 86:70.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert