Axel með tólf stig í tapi

Axel Kárason og félagar í Værløse töpuðu í kvöld.
Axel Kárason og félagar í Værløse töpuðu í kvöld. Ómar Óskarsson

Axel Kárason og félagar í Værløse töpuðu í kvöld gegn Svendborg Rabbits 85:77 í efstu deild danska körfuboltans í hörkuleik en Axel átti góðan leik.

Axel skoraði 12 stig og tók tvö fráköst á þeim tæpu 33 mínútum sem hann spilaði í leiknum sen var afar spennandi en jafnt var á öllum tölum, 68:68 þegar aðeins sjö mínútur voru eftir og aðeins einu stigi munaði á iðunum þegar fimm mínútur voru eftir.

Þá sigu hins vegar heimamenn fram úr og unnu að lokum átta stiga sigur 85:77.

Axel og félagar í Værløse eru í fallsæti í deildinni með 12 stig í 9. sæti en Svendborg hefur 30 stig í 3. sætinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert