Þetta var langt frá því að vera auðvelt

Ívar Ásgrímsson þjálfari Hauka var kátur með stórsigur sinna manna gegn Njarðvík í kvöld í Dominos-deild karla í körfuknattleik en vildi ekki viðurkenna að sigurinn hafi verið auðveldur.

Ívar sagðist hafa haft varan á enda Njarðvíkingar þannig lið að þeir geta verið snöggir að skjóta sig inn í hvaða leik sem er.  Ívar hrósaði hins vegar varnarleik sinna manna og taldi það hafa verið vendipunkt leiksins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert