Gunnar hafði betur gegn Elvari og Martin

Gunnar Ólafsson.
Gunnar Ólafsson. Ljósmynd/karfan.is

Gunnar Ólafsson og samherjar hans í liði St. Francis Brooklyn tryggðu sér í nótt sæti í undanúrslitum NEC-riðilsins í bandaríska háskólaboltanum.

St. Francis Brooklyn hafði betur á móti LIU Brooklyn, 79:70. Gunnar lék í átta mínútur og skoraði á þeim tíma 2 stig og tók 2 fráköst. Elvar Már Friðriksson skoraði 8 stig fyrir LIU Brooklyn, tók 5 fráköst og átti 7 stoðsendingar og Martin Hermannsson skoraði 8 stig, tók 2 fráköst og átti 4 stoðsendingar.

Gunnar og félagar mæta Saint Francis University í undanúrslitunum en LIU Brooklyn hefur lokið keppni þetta tímabilið.




mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert