Hefnir KR í Garðabæ?

KR-ingar freista þess að hefna fyrir ósigurinn í úrslitaleik bikarkeppninnar á dögunum þegar þeir sækja Stjörnuna heim í úrvalsdeild karla í körfuboltanum í kvöld. Stjarnan vann þá KR á dramatískan hátt, 85:83.

KR-ingar hafa reyndar að litlu að keppa í kvöld því þeir hafa þegar tryggt sér deildarmeistaratitilinn. Stjarnan er hinsvegar í hörðum slag við hálfa deildina um þriðja til fjórða sætið og heimaleikjarétt í úrslitakeppninni. Þar er Stjarnan sem stendur í fjórða sæti, með jafnmörg stig og Haukar og Njarðvík sem eru sæti ofar og neðar.

Þór og Grindavík eru síðan tveimur stigum neðar og eru líka í baráttunni um þessi sæti. Fimm leikir í 20. umferðinni eru leiknir í kvöld.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert