Hef sagt strákunum að Stjörnumenn hætta aldrei

Aðstoðarþjálfari Njarðvíkinga, Teitur Örlygsson segir að allir leikir í seríunni séu mikilvægir á þessu stigi. Njarðvík er 2:1 yfir í einvíginu og á Teitur ekki von á öðru en að næsti leikur verði sama barátta og hefur verið hingað til.  Hvernig það virkar svo á Stjörnumenn að vera komnir með bakið upp við vegg getur Teitur ekki séð annað en að Garðbæingar leggi allt í sölurnar til að ná oddaleik þegar liðin mætast í Garðabænum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert