Stoltur að vera í þessu einvígi

Hrafn Kristjánsson var óvenju sprækur þrátt fyrir tap hans manna í Ljónagryfju þeirra Njarðvíkinga í kvöld. Hrafn sagði að sínir menn hefðu þurft að taka fleiri fráköst en Njarðvíkingar voru grimmari í þeirri baráttu og það sýnir tölfræðin vel. Hrafn segist hafa vitað það að Stjörnumenn gætu þurft að fara í gegnum fimm leiki til að komast í gegnum Njarðvíkinga og að liðin væru nokkuð jöfn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert