Úrslitakeppnin í Dominos-deild karla í körfuknattleik heldur áfram í kvöld en þá fara fram tveir leikir.
Haukar og Þór Þorlákshöfn eru með bakið upp að veggnum fræga en tapi þau leikjum sínum í kvöld bíður þeirra sumarfrí.
Haukar fá Keflavík í heimsókn á Ásvelli en Keflavík hefur unnið báðar viðureignir liðanna og með sigri í kvöld fara þeir í undanúrslitin.
Á Sauðárkróki má reikna með að á brattann verði að sækja fyrir Þór Þorlákshöfn en liðið mætir heimamönnum í Tindastóli sem eru 2:0 yfir í einvígi liðanna.
Báðir leikir kvöldsins hefjast klukkan 19.15.