Durant fer í aðgerð í næstu viku

Kevin Durant spilar ekki meira í vetur.
Kevin Durant spilar ekki meira í vetur. AFP

Kevin Durant, besti leikmaður NBA-deildarinnar á síðasta tímabili, mun fara í aðgerð á fæti í næstu viku, en hann spilar ekkert meira með liði Oklahoma City Thunder á tímabilinu.

Durant hefur verið mikið frá vegna meiðsla í vetur og fór meðal annars í aðgerð í október. Hann sneri aftur í desember en meiddist aftur um miðjan febrúar og eftir nánari skoðun var ákveðið að hann færi undir hnífinn. Talið er að hann verði frá næstu 4-6 mánuðina.

Án Durant hefur lið Oklahoma verið í mikilli baráttu um sæti í úrslitakeppninni þegar tíu leikir eru eftir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert