60. sigurinn hjá Golden State

Leikmenn Golden State fagna.
Leikmenn Golden State fagna. AFP

Golden State Warriors er komið í efsta sæti í Vesturdeildinni í NBA eftir sigur gegn Milwaukee í nótt, 108:95.

Stephen Curry skoraði 25 stig fyrir Golden State og Klay Thompson 21 en þetta var 60. sigur liðsins í deildinni á tímabilinu.

Chicago burstaði New York á heimavelli sínum, 111:80. Nikola Mirotic skoraði 24 stig fyrir Chicago og Pau Gasol var með 19 stig og tók 12 fráköst.

Úrslitin í nótt:

Golden State - Milwaukee 108:95
Chicago - New York 111:80
Charlotte - Atlanta 115:100
Utah - Oklahoma 94:89
Portland - Denver 120:114

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert