„Vorum ekki nógu harðir við þá“

Pétur Rúnar Birgisson, leikstjórnandi Tindastóls, reyndi hvað hann gat gegn ógnarsterkri vörn KR í kvöld en Skagfirðingar komust lítt áleiðis og töpuðu 94:74. 

KR hefur því yfir 1:0 í úrslitarimmunni um Íslandsmeistaratitilinn en næsti leikur verður á Króknum á fimmtudaginn. 

„Við fráköstuðum mjög illa á móti þeim og mættum þeim ekki nógu vel í öðrum leikhluta. Við vorum ekki nógu harðir við þá og leyfðum þeim að ýta okkur út úr öllum stöðum,“ sagði Pétur meðal annars við mbl.is en viðtalið við hann má sjá í heild sinni á meðfylgjandi myndskeiði. 

Pétur í baráttu við Michael Craion í leiknum í kvöld.
Pétur í baráttu við Michael Craion í leiknum í kvöld. mbl.is/Golli / Kjartan Þorbjörnsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert