„Eigum að geta pakkað þeim saman í vörninni“

Pavel Ermolinskij gaf 10 stoðsendingar á samherja sína og tók 7 fráköst á Sauðárkróki í öðrum leik KR og Tindastóls. Það dugði þó ekki til fyrir KR því Tindastóll sigraði 80:72. 

Liðin eru því jöfn 1:1 í úrslitarimmunni og næsti leikur verður í Vesturbænum á sunnudagskvöldið. „Við gerum það sem við höfum gert í allan vetur og það er að trukka áfram
með það sem við gerum vel. Það hefur alltaf skilað okkur árangri og við ætlum ekki að fara neitt frá því,“ sagði Pavel meðal annars við mbl.is á Króknum og hann sagði að KR-liðið geti gert miklu betur í vörninni en það gerði að þessu sinni. 

Viðtalið við Pavel má sjá í heild sinni í meðfylgjandi myndskeiði. 

Pavel Ermolinskij
Pavel Ermolinskij mbl.is/Ómar Óskarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert