Stemning á Sauðárkróki

Fögnuður Skagfirðinga var ósvikinn þegar sigurinn var í höfn gegn KR í öðrum úrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitil karla í körfuknattleik. Heimamenn skelltu kunnum smelli með Geirmundi Valtýssyni á fóninn í leikslok. 

Meðfylgjandi myndskeið gefur einhverja innsýn í stemninguna en stuðningsmenn Tindastóls létu vel í sér heyra á leiknum og þá áttu KR-ingar einnig stuðningsmenn í stúkunni sem fylgdu þeim úr höfuðstaðnum. 

Stuðningsmenn Tindastóls.
Stuðningsmenn Tindastóls. mbl.is / Árni Sæberg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert