Við getum unnið titilinn

Carmen Tyson Thomas var ómyrk í máli þegar hún ræddi við blaðamann eftir tap í kvöld gegn Snæfelli á heimavelli, 76:85, í öðrum úrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitil kvenna í körfuknattleik. Snæfell er nú komið í 2:0 og er á heimavelli í þriðja leiknum á mánudagskvöldið.

Carmen sagði sitt lið þurfa að mæta til leiks í jafn stórum leikjum og um var að ræða. Hún hafði hinsvegar fulla trú á því að lið sitt gæti komið til baka og unnið titilinn. 

Sjá viðtalið við hana í meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert