Einar Árni tekur við liði Þórs Þorlákshöfn

Einar Árni handsalar samninginn við Þórsara.
Einar Árni handsalar samninginn við Þórsara. Ljósmynd/facebook síða Þórs

Einar Árni Jóhannsson skrifaði í dag undir samning til þriggja ára sem þjálfari meistaraflokks Þórs í Þorlákshöfn í körfuknattleik karla.

Einar Árni tekur við liðinu af Benedikt Guðmundssyni sem stýrt hefur liðinu með góðum árangri undanfarin ár.

Einar Árni hefur þjálfað í Njarðvík undanfarin ár bæði meistaraflokk og nú síðast sem yfirþjálfari yngri flokka. Einnig hefur hann þjálfað yngri landslið KKÍ.

Samhliða ráðningu Einars Árna hefur verið samið við heimamenn í meistaraflokksliði Þórs. Baldur Þór var ráðinn sem styrktarþjálfari og aðstoðarþjálfari meistaraflokks. En einnig eru Grétar Ingi, Þorsteinn Már og Emil Karel tilbúnir í slaginn næsta vetur. Leikmenn í drengja- og unglingaflokki munu styrkja liðið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert