Heldur áfram í Hólminum

Austin Magnús Bracey.
Austin Magnús Bracey. Ljósmynd/snaefell.is

Körfuboltamaðurinn Austin Magnús Bracey hefur samið að nýju við Snæfell í Stykkishólmi um að spila með liðinu í úrvalsdeildinni á næsta keppnistímabili.

Austin Magnús er 24 ára gamall framherji sem lék áður með Hetti og Val. Hann spilaði alla 22 leiki Snæfells í deildinni á síðasta tímabili og skoraði þar 17,5 stig að meðaltali í leik, og þá átti hann 4,2 stoðsendingar að meðaltali.

Frá þessu er greint á heimasíðu Snæfells og þar er lýst yfir ánægju með því að halda honum í herbúðum félagsins, enda sé Austin Magnús fyrirmynd, bæði innan og utan vallar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert