Körfuknattleiksmaðurinn Björg Einarsdóttir hefur skrifað undir samning við lið Grindavíkur. Björg kemur til Grindavíkur frá KR, en hún leikur sem bakvörður. Þetta kemur fram á heimasíðu Grindavíkur, umfg.is.
Grindvíkingar hafa verið að bæta verulega í leikmannahóp sinn síðustu misseri. Í gær skrifaði Helga Einarsdóttir undir samning við Grindavík, en áður höfðu þær Íris Sverrisdóttir, Lilja Ósk Sigmarsdóttir og Ingunn Kristínardóttir samið við lið Grindavíkur.
Grindavíkur hafa aftur á móti misst tvo leikmenn síðan á síðastliðnu keppnistímabili, en Pálína Gunnlaugsdóttir fór í Hauka og María Ben er í barneignarfríi og óljóst hvenær hún kemur til leiks á ný.