Landsliðið komið til Berlínar

Lukkudýr EM fékk mynd af sér með bakverðinum Herði Axel …
Lukkudýr EM fékk mynd af sér með bakverðinum Herði Axel Vilbergssyni. Ljósmynd/KKÍ

Karlalandsliðið í körfubolta skilaði sér í morgun til Berlínar þar sem liðið mun hefja leik á Eurobasket, lokakeppni EM, á laugardaginn. 

Landsliðið kom til Berlínar frá Póllandi þar sem liðið lék á fjögurra liða æfingamóti. 

Íslenska liðið mun leika fyrsta leikinn í riðlinum í Berlín á móti gestgjöfunum Þjóðverjum sem verða með NBA-stjörnuna Dirk Nowitzki innanborðs.

Riðillinn er ógnarsterkur en auk Íslands og Þýskalands leika þar Serbía, Ítalía og Tyrkland. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert