Hlynur frábær í sigri Sundsvall

Hlynur Bæringsson var öflugur með Sundsvall í dag.
Hlynur Bæringsson var öflugur með Sundsvall í dag. AFP

Hlynur Þór Bæringsson, leikmaður Sundsvall í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta, var öflugur í 93:91 sigri liðsins á Örebro í kvöld.

Íslenski landsliðsmaðurinn var magnaður með sænska liðinu í kvöld en hann gerði 14 stig og átti samtals 7 fráköst í leiknum.

Þegar liðið var 90:88 undir setti Hlynur mikilvæga tveggja stiga körfu áður en hann setti niður eitt víti og því afar mikilvæg stig fyrir Sundsvall.

Liðið er í 3. sæti deildarinnar sem stendur með 4 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert