Axel Kárason, landsliðsmaður í körfubolta, gerði sex stig fyrir Svendborg Rabbits í tapi, 78:83, gegn Bakken Bears á heimavelli í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld.
Svendborg er í fjórða sæti deildarinnar með 6 stig en liðið hefur farið deildina nokkuð vel af stað.
Liðið tapaði þó í dag en Axel var með 6 stig, 6 fráköst og 1 stoðsendingu í leiknum í kvöld. Það dugði þó ekki til sigurs.
Næsti leikur liðsins er gegn Næstved á föstudag.