Jakob Sigurðarson heldur áfram að gera góða hluti með liði Borås í sænska körfuboltanum. Í kvöld skoraði Jakob 20 stig og var næststigahæstur í sínu liði sem vann Luleå 102:85.
Jakob setti niður fjórar þriggja stiga körfur úr fimm skotum, gaf tvær stoðsendingar og tók þrjú fráköst.
Borås er í 2. sæti deildarinnar með sex sigra í átta leikjum, tveimur minna en Södertälje Kings.