Jón Axel ósáttur eftir tap gegn meisturunum

Jón Axel Guðmundsson leikstjórnandi Grindvíkinga var súr á svip í leikslok eftir að hafa tapað gegn meisturum KR, 93:73, í Dominos-deild karla í körfuknattleik í kvöld.

Ekki nema von þar sem að Grindvíkingar voru hálf andlausir megnið af kvöldinu. Jón Axel sagði við mbl.is að hans lið hefði alls ekki verið tilbúið til að taka á móti tvöföldum meisturum KR og því hafi leikurinn farið eins og hann fór.

Nánar er rætt við Jón Axel í meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert