Maciej til Þorlákshafnar

Jóhanna Margrét Hjartardóttir formaður körfuknattleiksdeildar Þórs og Maciej Baginski við …
Jóhanna Margrét Hjartardóttir formaður körfuknattleiksdeildar Þórs og Maciej Baginski við undirritunina. Ljósmynd/Þór

Maciej Baginski, einn af bestu leikmönnum körfuknattleiksliðs Njarðvíkur á nýliðnu keppnistímabili, hefur samið við Þór í Þorlákshöfn um að leika með liðinu næsta vetur. Frá þessu var skýrt á Facebook-síðu Þórs í kvöld.

Maciej er 21 árs gamall bakvörður sem er uppalinn hjá Njarðvík en hann hefur leikið með öllum yngri landsliðum Íslands. Hann skoraði 12,3 stig að meðaltali í leik fyrir Njarðvíkinga í vetur.

Þjálfari Þórs er Einar Árni Jóhannsson sem þjálfaði Maciej hjá Njarðvík um árabil.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert