Stjarnan með flestalla áfram

Justin Shouse spilar áfram með Stjörnunni.
Justin Shouse spilar áfram með Stjörnunni. mbl.is/Styrmir Kári

Stjörnumenn gengu í gærkvöld frá samningum við flestalla þá leikmenn sem léku með liðinu á síðasta keppnistímabili í körfubolta karla og mæta því með lítið breytt lið til leiks næsta haust. Þetta kemur fram á karfan.is.

Í þeim hópi eru Justin Shouse, Marvin Valdimarsson, Sæmundur Valdimarsson, Ágúst Angantýsson, Arnþór Freyr Guðmundsson og Magnús Bjarki Guðmundsson.

Þá hafa allir sem spiluðu að ráði með liðinu síðasta vetur skrifað undir, nema Tómas Þórður Hilmarsson sem fer utan í nám, og Al'lonzo Coleman. Einn leikmaður hefur bæst í hópinn, Eysteinn Bjarni Ævarsson, sem kemur frá Hetti.

Stjarnan hafnaði í 2. sæti úrvalsdeildarinnar í vetur en féll út gegn Njarðvík í átta liða úrslitum. Þá vann liðið deildabikarinn í byrjun tímabilsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert