Fer fyrrum þjálfari Cleveland til Tyrklands?

David Blatt.
David Blatt. AFP

David Blatt, fyrrum þjálfari Cleveland Cavaliers í NBA-deildinni í körfuknattleik, gæti tekið við tyrkneska liðinu Darussafaka í sumar, samkvæmt heimildum ESPN.

Blatt naut gríðarlegrar velgengni í Evrópu áður en hann tók við Cleveland fyrir um tveimur árum síðan. Cleveland komst í úrslit NBA-deildarinnar á síðasta tímabili undir stjórn hans en hann var óvænt rekinn í janúar þessa árs, þrátt fyrir gott gengi Cleveland á tímabilinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert