Helena ekki með Haukum í vetur

Haukaparið Helena Sverrisdóttir og Finnur Atli Magnússon eiga von á …
Haukaparið Helena Sverrisdóttir og Finnur Atli Magnússon eiga von á barni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Helena Sverrisdóttir, besta körfuboltakona landsins, mun ekki leika með Haukum á komandi keppnistímabili. Helena og unnusti hennar, landsliðsmaðurinn Finnur Ingi Magnússon, eiga von á sínu fyrsta barni.

Helena staðfesti þessar fréttir við íþróttadeild mbl.is í dag og þar sagði hún jafnframt að hún kæmi til með að mæta aftur til leiks tímabilið 2017-2018.

Helena er af flestum talin besti leikmaður sem Ísland hefur átt í körfubolta kvenna. Hún kom heim til Hauka fyrir síðasta tímabil eftir áralanga dvöl í atvinnumennsku og lék frábærlega með uppeldisfélaginu. Fékk hún fullt hús stiga hjá álitsgjöfum Morgunblaðsins þegar blaðið stóð fyrir því að velja Úrvalslið Íslands í íþróttinni og var kynnt hinn 7. maí síðastliðinn. 

Helena fagnaði deildarmeistaratitli með Haukum en þurfti að sætta sig við silfur í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn eftir spennandi viðureign gegn Snæfelli.

Hún var kosin leikmaður ársins en Helena skoraði 23,1 stig, tók 13,2 fráköst og gaf 7,5 stoðsendingar að meðaltali í Dominosdeildinni í fyrra.

Haukur Helgi Pálsson og Helena Sverrisdóttir voru bestu leikmenn Dominos-deildanna …
Haukur Helgi Pálsson og Helena Sverrisdóttir voru bestu leikmenn Dominos-deildanna í fyrra. Ófeigur Lýðsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert