Jón Arnór leikur á Íslandi í vetur

Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson. Eva Björk Ægisdóttir

Jón Arnór Stefánsson, landsliðsmaður í körfuknattleik, mun leika í úrvalsdeild karla á Íslandi í vetur. Það er Karfan.is sem greinir frá þessu í dag.

„Ég ákvað að vera heima, tók þá ákvörðun í gær,“ sagði Jón Arnór við Körfuna.is og tók það fram að hann væri ekki á leið í atvinnumennsku á næstu leiktíð.

Ekki er komið á hreint hvar Jón mun leika en vitað er að hann á í viðræðum við fleiri en eitt lið hér á landi.

„Ég var alltaf á því að eitthvað mjög spennandi þyrfti að koma til að ég færi út aftur en það er líka ákveðinn léttir að vera búinn að taka þessa ákvörðun svo ég er bara sáttur. Það er gaman að koma heim og spila og þessu fylgir auðvitað að maður sé að ræða við fleiri en einn aðila,“ sagði Jón við Körfuna.is í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert