Jón Arnór á leið í Vesturbæinn

Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson. mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir

KR-ingar hafa boðað til blaðamannafundar kl. 17 í dag þar sem landsliðsmaðurinn Jón Arnór Stefánsson verður tilkynntur sem leikmaður körfuknattleiksdeildar félagsins samkvæmt heimildum mbl.is.

Jón Arnór staðfesti í gær að hann myndi leika á Íslandi í vetur. Hann sagðist hafa verið í viðræðum við ýmis félög en nú virðist vera sem svo að hann sé á leið til KR-inga á ný.

Jón Arnór er uppalinn hjá KR og lék með liðinu tímabilið 2008-09 en það er einmitt hans eina tímabil sem hann hefur leikið hérlendis.

Jón Arnór hefur auk KR verið orðaður við Grindavík og Stjörnuna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert