Hlynur fer í Stjörnuna

Hlynur Bæringsson.
Hlynur Bæringsson. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Hlynur Bæringsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í körfuknattleik, mun leika með Stjörnunni  í Dominos-deildinni í vetur. Hrafn Kristjánsson, þjálfari Stjörnunnar, staðfesti þetta við mbl.is. 

Hlynur hefur náð munnlegu samkomulagi við Garðbæinga en mun skrifa undir samning við félagið seint í kvöld, að loknum leiknum gegn Sviss í Laugardalshöllinni. 

Hlynur lék síðast hérlendis árið 2010. Vann hann þá tvöfalt með Snæfelli og var kjörinn leikmaður ársins af andstæðingum sínum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert